staðan í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegur forseti. Heilbrigðiskerfið á við ýmis vandamál að stríða. Það er mannekluvandi, fjársveltisvandi, biðlistavandi og síðan vandi eldra fólks sem situr fast inni á sjúkrahúsum vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki fundið viðunandi úrræði fyrir það. Svona mætti lengi telja. Vandamálið er fjölbreytt og fyrirfinnst úti um allt kerfið og staðan virðist aldrei batna, jafnvel fyrir Covid-19 virtist staðan aðeins versna ár frá ári. Í dag, þegar yfir 1.000 smit greinast á degi hverjum, er ekki skrýtið að staðan sé slæm. Sjúkrarýmum hefur fækkað miðað við íbúafjölda undanfarna áratugi en þrátt fyrir það er ekkert útlit fyrir að þeim muni fjölga verulega á næstu árum, jafnvel þótt verið sé að byggja hér hátæknisjúkrahús. Áætlanir um fjölgun hjúkrunarrýma halda ekki í við fólksfjölgun, hvað þá í ljósi öldrunar þjóðarinnar. Mönnun er víðs vegar langt undir eðlilegum viðmiðum. Sem dæmi má nefna að nú starfa 22 geðlæknar á Landspítalanum í 19,7 stöðugildum en þörf er á 31 stöðugildi til að tryggja viðunandi þjónustu. Þá eru margvísleg dæmi um samskiptaörðugleika milli stjórnvalda og einkarekinna aðila sem sinna heilbrigðisþjónustu.
Að lokum ber að þakka því starfsfólki sem hefur lagt á sig þvílíka vinnu við að tryggja að heilbrigðiskerfið hrynji ekki í þessum faraldri. En það starfsfólk á síðan eftir að þurfa að taka á þeim vanda sem biðlistarnir hafa skapað í þessu kerfi. Og hvernig í ósköpunum ætlum við að fara að því og sjá til þess að þetta fólk örmagnist ekki algerlega?