152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

staðan í heilbrigðiskerfinu.

[14:37]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka framsögumanni þessarar umræðu og svör ráðherra. Í ljósi þess mikla álags sem hefur verið á Landspítalanum frá upphafi kórónuveirufaraldursins er erfitt að bera saman stöðuna nú og í eðlilegu árferði. Útgjöld til Landspítalans hafa hækkað um 9,3 milljarða frá árinu 2019. Það jafngildir aukning um 12,4% á síðastliðnum fjórum árum, eins og hér hefur komið fram. Allar óskir um fjárframlög vegna sérstakra aðgerða vegna Covid hafa verið samþykktar og ekkert upp á ríkissjóð að klaga í þeim efnum. Landspítalinn fær árið 2022, eins og heilbrigðisráðherra nefndi í ræðu sinni áðan, um 2.000 milljónir eða allt sem beðið var um vegna Covid. Þrátt fyrir það hefur minni hlutinn í þinginu hamast á því að eina leiðin til að auka afköst Landspítalans um þessar mundir sé aukið fjármagn.

Virðulegur forseti. Á opnum fundi velferðarnefndar í síðustu viku svaraði Már Kristjánsson, formaður farsóttarnefndar Landspítalans, slíkri spurningu minni hlutans eitthvað á þessa leið: Þó að ríkissjóður legði allan sinn pening inn á reikning Landspítalans myndu afköst hans ekki aukast. Það eina sem Landspítalinn þarf eru færri sjúklingar. Hann þarf færri sjúklinga.

Það er mikilvægt að við styrkjum rekstur Landspítalans til lengri tíma og fækkum á biðlistum með færri sjúklingum á Landspítalanum. Við verðum að vinna á biðlistunum með því að gera samninga við einkaaðila um aðgerðir sem áður voru gerðar erlendis. Verðmæti hvers sjúklings sem aftur kemst í verðmætasköpun í samfélaginu eftir langvarandi veikindi eru okkur öllum kunn. Það má hrósa hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir að nýta krafta einkaframtaksins með því að semja við Klíníkina og Orkuhúsið um að fá starfsmenn á þeirra vegum í tímabundin verkefni á Landspítalanum og er það áhugaverð samvinna. Það er auðvitað neyðarástand þegar grípa þarf til slíkra ráða. Eina leiðin út úr kórónuveirufaraldrinum er samstaða okkar. Aðeins með samvinnu vinnum við okkur út úr vandanum. Kjaramál hjúkrunarfræðinga er mjög mikilvægt að skoða og bera laun þeirra saman við sambærilegar stéttir erlendis, bæði laun og vinnutíma.