152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

staðan í heilbrigðiskerfinu.

[14:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hver er staðan í heilbrigðiskerfinu í dag? Árið 2006 kom út skýrslan Spá um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðiskerfinu. Þar var gert ráð fyrir því að það þyrfti um 3.400–4.000 hjúkrunarfræðinga árið 2020, en fjöldi starfandi hjúkrunarfræðinga árið 2020 var 3.400. Fjöldi lækna þyrfti að vera á bilinu 1.300–1.600, en fjöldi starfandi lækna árið 2020 var rétt rúmlega 1.400. Það rétt náðist að fylgja spánni um hversu marga hjúkrunarfræðinga og lækna við þyrftum á að halda. Sæmilegt, er það ekki? Nei. Spáin árið 2006 byggðist á mannfjöldaspá Hagstofunnar sem gerði ráð fyrir að 320.000 manns byggju á Íslandi árið 2020. Raunin var hins vegar sú að 1. janúar 2020 voru landsmenn 364.134, rúmlega 44.000 fleiri, næstum því 14% fleiri. Samkvæmt grófri námundun þá vantar einnig um 14% fleira heilbrigðisstarfsfólk að lágmarki. Það ættu því að vera tæplega 3.900 hjúkrunarfræðingar og 1.600 læknar, sem var einmitt hámarkið í spánni árið 2006.

Þetta er staðan í heilbrigðiskerfinu; undirmönnun, undirfjármögnun. Þar sem til er skýrsla sem segir okkur við hverju mátti búast, skýrsla sem stenst rýnina úr baksýnisspeglinum ágætlega, þá er ekki hægt að segja annað en að staðan sé sú sem hún er í dag af því að stjórnvöld ákváðu að þetta skyldi vera staðan. Ég tel að ástæðan fyrir stöðunni sé pólitísk hugmyndafræði frekar en að fagleg vinnubrögð ráði ferð. Ef kerfið er fjársvelt og kjarasamningum er stöðugt beint í Kjaradóm þá grefur það undan vilja fólks sem grefur undan kerfinu. Ég tel að þetta sé ákvörðun sem er tekin af yfirlögðu ráði til að láta einkavæðingardrauma í heilbrigðisþjónustu verða að veruleika, yfirveguð ákvörðun um að landsmenn þurfi að þola skaðann því tilgangurinn helgar pólitíska meðalið. Það er staðan í heilbrigðiskerfinu í dag.