152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

staðan í heilbrigðiskerfinu.

[14:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að leiðrétta mismæli mitt úr fyrri ræðu minni. Það var auðvitað Már Kristjánsson sem hafði uppi þau orð á opnum fundi í velferðarnefnd í síðustu viku að það væri sama hve miklum peningum væri bætt við rekstur spítalans, það myndi ekki leysa vandamálið sem spítalinn stendur frammi fyrir hvað mönnun varðar.

Mig langar í þessari seinni ræðu minni að minnast á þriðja atriðið sem hv. málshefjandi kemur hér inn á sem er byggðajöfnun með heilbrigðisþjónustu um allt land og hlutverk Landspítalans í aukinni sérfræðiþjónustu í öllum landshlutum. Í því samhengi finnst mér allt of lítið rætt um það hér í þessum sal hversu mikill kostnaður það er sem íbúar landsbyggðarinnar bera af því að öll þjónusta hefur á undanförnum árum fyrst og fremst safnast saman hér við Hringbraut. Það er gríðarlegur kostnaður sem lendir á fjölskyldum landsins sem búa fjær þessari kjarnaþjónustu og felst ekki bara í ferða- og uppihaldskostnaði heldur er um að ræða vinnutap, frídaga sem þarf að taka vegna þessa daginn á undan og daginn eftir. Ég held að við verðum, á meðan ekki er lögð meiri áhersla á að styðja við heilbrigðisstofnanirnar sem eru til staðar úti um landið, að taka þetta atriði inn í þá umræðu sem hér á sér stað. Þetta snýr að, eins og ég segi, kostnaði íbúa landsbyggðarinnar við að sækja sér að miklu leyti þá sérfræðiþjónustu, sérhæfðu, sem þörf er á hingað til höfuðborgarinnar. Ef við horfum ekki á þetta sem hluta af jöfnunni verður þessi íþyngjandi landsbyggðarskattur enn meira íþyngjandi á komandi árum en hingað til hefur verið.