152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

uppbygging félagslegs húsnæðis.

6. mál
[18:10]
Horfa

Flm. (Logi Einarsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu á félagslegu húsnæði en flutningsmenn eru þingmenn Samfylkingarinnar. Við leggjum til að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að efla almenna íbúðakerfið með uppbyggingu 500 leigu- og búseturéttaríbúða á hverju ári, umfram það sem þegar hefur verið ákveðið, í samstarfi við húsnæðisfélög án hagnaðarsjónarmiða. Þingsályktunartillaga þessi er forgangsmál Samfylkingarinnar á þessu þingi, eða eitt af þeim, enda er öruggt húsnæði sjálfsögð mannréttindi. Og nú þegar við siglum inn í kjaraviðræður munu húsnæðismálin einkum leika hlutverk og ráða úrslitum um hvernig til tekst.

Frú forseti. Tryggt húsnæði er staður sem skapar einstaklingum og fjölskyldum öryggi og við köllum það í daglegu máli heimili. Húsnæði telst því til grunninnviða og grunnréttinda og stjórnvöld verða að skapa kjölfestu sem markaðurinn getur síðan byggt á. Aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum síðustu árin hafa ekki skilað nægilega góðum árangri með þeim afleiðingum að aðstæður margra á húsnæðismarkaði hafa versnað talsvert. Í stað þess að vinna markvisst að varanlegum lausnum hafa stjórnvöld frekar slökkt elda eða í sumum tilfellum jafnvel ýkt vandann með því að ýta undir eftirspurn án þess að setja nokkurt púður sem dugir í uppbyggingu.

Samkvæmt félagsvísum Hagstofunnar fjölgaði þeim sem bjuggu við þröngan húsakost úr 25.000 manns árið 2005 í tæplega 50.000 árið 2018. Þessari þróun þarf einfaldlega að snúa við. Þetta helst í hendur við þá staðreynd að húsnæðiskostnaður hefur hækkað 40% umfram ráðstöfunartekjur fólks á síðustu 25 árum og munar um meira. Frá því að félagslega íbúðakerfið var lagt niður af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum um síðustu aldamót hefur framboð á húsnæði fyrir fólk undir meðaltekjum dregist saman og sveiflur á húsnæðismarkaði orðið tíðari. Gildistaka laga um almennar íbúðir og reglugerð um stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga árið 2016 var vissulega jákvætt skref en félagslegar íbúðir eru enn of fáar og tilraun til að endurreisa félagslega íbúðakerfið er enn á algjöru frumstigi.

Samfylkingin leggur því, eins og áður sagði, til að ríkisstjórnin taki næsta skref í átt að fullri endurreisn félagslega húsnæðiskerfisins, að hún efli almenna íbúðakerfið verulega með því markmiði að stuðla að húsnæðisöryggi fólks og heilbrigðara efnahagslífi. Nánar tiltekið að ríkisstjórnin hafi forgöngu um uppbyggingu 500 leigu- og búseturéttaríbúða á hverju ári í samstarfi við húsnæðissamvinnufélög án hagnaðarsjónarmiða og það er til viðbótar við það sem nú er gert ráð fyrir. Þetta yrði samanlagt, ef gengi eftir, þriðjungur af árlegu byggingarmagni. Þetta kallar á u.þ.b. tvöföldun stofnframlaga í fjárlögum og þannig væri unnt að fjölga íbúðum um allt land fyrir tekjulægri hópa og draga úr verðhækkunum bæði á eigna- og leigumarkaði.

Uppbygging félagslegra íbúða kann að vera tímabundin á einstökum svæðum en varanleg á öðrum og getur lotið ólíkum lögmálum frá einu svæði til annars. Þess vegna er nauðsynlegt að stjórnvöld komi á fót húsnæðisáætlun og húsnæðisstefnu til lengri tíma um allt land, líkt og gert er með samgönguinnviði í samgönguáætlun. Þetta er vel hægt og þetta er skynsamlegt. Í öllu falli er þörf á skýrari stefnumörkun stjórnvalda í húsnæðismálum í nánu samstarfi við sveitarfélögin í landinu, aðila vinnumarkaðarins og aðra hagsmunaaðila. Við sjáum t.d. að það er langtímavandi í uppbyggingu húsnæðis á landsbyggðinni og húsnæðisskortur veldur ótryggari vinnumarkaði á svæðum þar sem byggingarkostnaður er langt yfir markaðsvirði húseigna. Á slíkum svæðum getur ríkið þurft að styðja við byggingu íbúða til langframa. Jafnframt er mikilvægt í þessu samhengi að skoðað verði gaumgæfilega hvernig hægt er að jafna byrði sveitarfélaga þegar kemur að uppbyggingu félagslegs húsnæðis. Auk þess er mjög mikilvægt að gæði þess húsnæðis sem byggt er fyrir opinbert fjármagn séu tryggð og að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi við alla uppbyggingu. Mikilvægur þáttur í því er að ríkið móti raunverulega stefnu og tryggi nægt fjármagn í nýsköpun og rannsóknir í byggingariðnaði.

Frú forseti. Með uppbyggingu félagslegs húsnæðis tökum við því markvisst skref í áttina að heilbrigðum húsnæðis- og leigumarkaði til framtíðar, skref sem þarf að taka til að berjast gegn fátækt í landinu, en að sjálfsögðu líka til að tryggja öllum almenningi þau sjálfsögðu mannréttindi sem öruggt húsnæði er. Stöðugri húsnæðismarkaður mun draga úr efnahagssveiflum, styðja við atvinnulífið og treysta hagkerfið og við getum um leið verið viss um að þetta er besta leiðin til að við náum markmiðum okkar í loftslagsmálum, ef við stöndum rétt að málum. Samfylkingin leggur þess vegna til að ríkið stuðli að stöðugri, betri og grænni uppbyggingu á félagslegu húsnæði um allt land. Til þess þurfum við skýra framtíðarsýn og eigum að vera óhrædd við að beita hinu opinbera á markvissan og skynsamlegan hátt.

Frú forseti. Öruggt húsnæði er jafn sjálfsagður hlutur og fæði, klæði, menntun og góð heilbrigðisþjónusta. Ég skora því á hv. þingmenn að taka vel í þessar tillögur svo við getum aukið lífsgæði fólks um allt land. Ég legg að lokum til, eftir þessa umræðu, að málinu verði vísað til velferðarnefndar.