152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

loftslagsmál.

8. mál
[19:08]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. 10. þm. Reykv. n. kærlega fyrir ræðu hans og framsögu. Ég held að við deilum algjörlega þeirri skoðun, sem fær ört aukið fylgi, bæði á Íslandi og í heiminum öllum, að þetta sé stærsta áskorun samtímans, að takast á við loftslagsmálin. Ég hef sérstakan áhuga á því sem er í fjallað um í 4. gr. frumvarpsins og lýtur að skipan loftslagsráðs, sér í lagi vegna þess að það er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að styrkja stjórnsýslu loftslagsmála og taka hlutverk loftslagsráðs til endurskoðunar með aukinni áherslu á ráðgefandi hlutverk og vísindastarf auk aðhalds- og eftirlitshlutverks gagnvart stjórnsýslunni. Mér sýnist að í stærstu dráttum fari áherslurnar þar saman við tillögu hv. þingmanns.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að það sé sjálfstæði í því ráðgjafar- og aðhaldshlutverki sem loftslagsráðið gegnir. Í greinargerð með 4. gr. er tekið sem dæmi að í evrópskum loftslagslögum var sett á laggirnar sjálfstætt vísindaráð í loftslagsmálum sem telur 15 manns. En þessi tillaga kveður á um fimm fulltrúa, þar af tvo tilnefnda af Alþingi og svo þrjá frá samstarfsnefnd háskólastigsins, þannig að þar erum við komin með þennan vísindalega vinkil. Ef þingmaðurinn vildi fara örlítið í þessi skil, þ.e. á milli vettvangsins annars vegar og ráðsins hins vegar og kannski sér í lagi varðandi aðkomu ungs fólks að þessu hlutverki, hvar það geti komið að málum, af því að ég held að við séum mörg mjög sammála um að það er vegna radda ungs fólks sem við erum að mörgu leyti komin á betri stað í orðræðunni.