152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

loftslagsmál.

8. mál
[19:11]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefnir það sem stendur í stjórnarsáttmálanum varðandi eflingu loftslagsráðs. Jú, það er vissulega samhljómur á milli þess markmiðs ríkisstjórnarinnar og þess sem hér stendur, og svo sem ekki eini staðurinn í stjórnarsáttmálanum þar sem sá sem hér stendur hefur greinilega haft jákvæð áhrif á textann. Þetta er frumvarp sem var lagt fram tæpu ári áður en ríkisstjórnin var mynduð þannig að ég fagna því bara að geta komið góðu til leiðar þar.

Varðandi skipan ráðsins er ég opinn fyrir því hvernig hægt væri að haga henni. Mig minnir nú eiginlega að ég hafi afritað þetta ákvæði úr lögum um opinber fjármál. Það endurspeglar í rauninni samsetningu og hlutverkslýsingu fjármálaráðs gagnvart fjármálaráðherra og áætlanagerð hans. Ég held að það sé bara ágætt að ráðherra loftslagsmála lúti sambærilegu aðhaldi. Lög um opinber fjármál setja fjármálaráðherra hvers tíma ansi stífan ramma og fjármálaráð, sem óháð ráð sérfræðinga, held ég að sé eitt það besta í þeim lögum. Þess vegna fannst mér vel við hæfi að klína því inn í loftslagsmálin líka.

Varðandi samspilið við vettvanginn þá er það nú skilið eftir dálítið opið. Í rauninni er ráðherranum látið dálítið mikið eftir að manna hann, eins og er í rauninni með loftslagsráð í gildandi lögum þar sem ráðherra hefur ansi frjálsar hendur.