152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

loftslagsmál.

8. mál
[19:13]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við getum farið í keppni um það hver hafði áhrif á hvern, við öll hin sem höfum lagt aukna áherslu á loftslagsmál í orðræðu og aðgerðum. Og sem betur fer höfum við líka séð málaflokkinn þokast ofar á aðgerðalistanum, held ég, í hugum og hjörtum fólks.

Svo ég komi nú aftur að þessu með unga fólkið og aðkomu þess: Skil ég það rétt að þingmaðurinn sjái fyrir sér að staður þess gæti hugsanlega verið á loftslagsvettvangi, sem kveðið er á um í 6. gr. frumvarpsins? Og eins þetta með tilnefningu Alþingis, ég skil vel að þarna sé verið að horfa til og settar ákveðnar skorður á hvers lags einstaklingar geti átt sæti í þessu ráði, og hv. þingmaður vísar í fjármálaráð. En í ljósi þess að samsetningin, eins og vísað var í í fyrra andsvari varðandi Evrópuloftslagslögin um að það sé sjálfstætt vísindaráð, finnst hv. þingmanni eðlilegt að Alþingi hafi þá yfir höfuð aðkomu að skipan í ráðið?