152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

loftslagsmál.

8. mál
[19:14]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Af því að ég kom ekki unga fólkinu að í fyrra andsvari þá held ég einmitt að það gæti verið mikill mótor innan loftslagsvettvangsins þar sem gert er ráð fyrir aðkomu atvinnulífs, háskólasamfélags, sveitarfélaga og umhverfisverndarsamtaka. Og sérstaklega innan umhverfisverndarsamtaka hafa samtök ungmenna verið algjörlega leiðandi í umræðu um loftslagsmál á síðustu árum.

Núverandi loftslagsráð er algjörlega óbeislað í lögum um loftslagsmál þannig að ráðherra hefur sjálfdæmi um það hvernig það er skipað. Hann getur handvalið fólk hvaðan sem er. Mér finnst skipta máli að það sé einhvers konar rammi utan um ráðið. Hversu margir eru skipaðir af hverjum finnst mér ekki skipta öllu, við getum rætt það í nefndinni. En 4. gr., varðandi loftslagsráð — mér þykir skipta máli að þar sé skýr rammi varðandi fjölda, umboð og verkefni og líka hvaða sérþekkingu viðkomandi þarf að búa yfir, en að loftslagsvettvangurinn geti verið meira fljótandi og verkefni hans geti þróast í takt við umræðuna og þörfina. Í frumvarpinu er lagt til að hann fundi ársfjórðungslega. Þetta verður svona stórfundur fólks sem vill sjá aðgerðir í loftslagsmálum. Ég held að það gæti verið töluverð búbót fyrir okkur sem viljum sjá umræðuna þróast hraðar og akkúrat með því að tryggja sem breiðasta aðkomu og aðkomu ungs fólks að þessu þar sem það getur verið á jafningjagrundvelli við alla aðra hagsmunaaðila í þessari umræðu.