152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

hjúskaparlög.

172. mál
[19:39]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svörin. Það er annað sem mér dettur í hug. Þetta er löggjörningur sem tveir einstaklingar geri með sér og hér er verið að tala um ofbeldi, þ.e. að annar aðilinn sé kannski beittur ofbeldi í hjónabandinu. En segjum svo að ekkert ofbeldi sé til staðar, er ekki alveg eins hægt að létta þessum kvöðum? Þurfa báðir aðilar að vera sammála? Ef annar aðilinn er ekki sammála um að vera í hjónabandinu þá tekur þetta líka svolítið langan tíma. Finnst flutningsmanni ekki ástæða til að auðvelda einstaklingi að fá lögskilnað, þótt hann sæti ekki ofbeldi í hjónabandinu heldur vilji bara komast út úr því en hinn aðilinn er ekki sammála? Það hafa komið upp dæmi um að fólk hefur skilið að borði og sæng og síðan neitar hinn aðilinn, þótt ofbeldi sé ekki endilega inni í myndinni, það gætu verið eignir og ýmislegt sem hamlar því að hinn aðilinn vilji samþykkja lögskilnað. Er ekki ástæða til þess, ef einstaklingur vill ganga út úr þessum gjörningi, að auðvelda þann farveg?