152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

hjúskaparlög.

172. mál
[19:41]
Horfa

Flm. (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka aftur andsvarið. Þetta er mjög áhugaverður og góður punktur og ég er til í þessa umræðu hvenær sem er. Mér finnst hins vegar, svo ég segi það bara hreint út, svo mikil skömm að því hvernig þolendum ofbeldis í sambandi er í sumum tilfellum gert nær ókleift að losa sig, að ég vildi, og flutningsmenn þessa frumvarps, hafa áhersluna þar eins og er. Svo er ég beggja blands gagnvart því hvort ég vilji að umræðan fari út í þetta í afgreiðslu þessa tiltekna máls vegna þess að ég óttast að það drepi áherslum á dreif, af því að mér finnst þetta svo mikilvægt. En ég er sannarlega til í umræðu um þessi mál hvenær sem er. Ég þekki svona mál líka, þetta er ekkert einfalt. Þó að ekki sé beinlínis um að ræða þá skilgreiningu á ofbeldi sem við tiltökum í þessu máli, eins og hv. þingmaður nefnir, þá er það ekkert annað en ofbeldi að neyða fólk til samvista við sig eða tengsla gegn vilja þess. Þetta er bara mjög flókið mál. En akkúrat núna myndi ég vilja sjá Alþingi Íslendinga klára þetta tiltekna mál og stíga svo hitt skrefið.