hjúskaparlög.
Frú forseti. Ég fæ kannski að byrja þar sem andsvörum sleppti hér áðan, vegna þess að það sem hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir benti á skiptir nefnilega máli. Það varpar svo góðu ljósi á hvað það eru mörg atriði í hjúskaparlögum, eins og þau standa í dag, sem þarf að skoða og endurskoða og laga. Ég gekk nú svo langt, í andsvörum við hæstv. innanríkisráðherra hér fyrr í dag, að segja að það væru orðnir svo margir ýldublettir í lögunum að taka þyrfti þau til heildarendurskoðunar. Ég held við séum bara komin á þann stað. Þetta eru 29 ára gömul lög, samfélagið hefur breyst mjög á þeim tíma. Þau endurspegla ekki lengur þann veruleika eða þær þarfir sem nútímasamfélag gerir til þeirra.
En við skulum taka hópinn næst sem hv. þingmaður nefndi hér áðan. Þó að ég sé algerlega sammála hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur um það þá tek ég undir með hv. flutningsmanni að nú sé gott að taka ofbeldismálin fyrir af því að þau eru flóknust. Það eru málin þar sem samskiptin eru algerlega farin í skrúfuna, þar sem samlyndið er bara ekkert, þar sem ekki er hægt að ná neinu samkomulagi. Ég má til með að þakka hv. þingmanni fyrir að hafa unnið þetta mál svona vel og af mikilli virðingu fyrir fólkinu sem þarf á þessu lagaúrræði að halda. Það er ekki oft sem við sjáum frumvörp koma frá þingmönnum jafn vel undirbúin og undirbyggð og þetta frumvarp. Ég er bara mjög ánægður með að hafa verið boðið að vera meðflutningsmaður á því og vona að það nái alla leið fyrir vorið.
Mig langar ekki að dvelja mikið við ofbeldismálin, hv. þingmaður gerði ágætlega grein fyrir þeim í framsögu sinni, heldur langar mig aðeins að nefna 9. gr. frumvarpsins sem má ættbókarfæra til þess sem hér stendur, vegna þess að hv. flutningsmaður gerði mér þann mikla greiða að taka yfir frumvarp sem ég lagði fram síðasta vetur varðandi það sem ég kalla snöggskilnaði, sem er sem sagt lögskilnaður án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng ef hjón eru sammála um að leita skilnaðar og það eru engir aðrir hagsmunir sem kalla á að þau fari í gegnum lengra ferli. Allt varðandi forræði yfir börnum, eignir og allt það saman, það er ekkert vesen, það er sátt og samlyndi. Hér er bara fullorðið fólk sem veit að það vill ekki vera saman lengur og þá er alveg fráleitt að láta fólk sitja af sér sex mánuði, skilið að borði og sæng.
Ég grennslaðist fyrir um það á 148. löggjafarþingi, með fyrirspurn til þáverandi dómsmálaráðherra, hversu hátt hlutfall skilnaða á Íslandi væri beinn lögskilnaður. Á árabilinu 2013–2017 voru um 1.400 lögskilnaðir á ári. 55% voru beinn lögskilnaður. Við skulum rifja upp, frú forseti, að heimild til lögskilnaðar án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng er afskaplega þröng í gildandi lögum. Það er heimild til þess ef um er að ræða hjúskaparbrot eða ef annað hjóna hefur orðið uppvíst að líkamsárás eða kynferðisbroti er bitnar á hinu eða barni sem býr hjá þeim. Til að reyni á þetta ákvæði þarf að vera sönnun fyrir slíku broti, ýmist í formi játningar eða haldbærra sönnunargagna.
Nú hef ég ekki miklar rannsóknir til að styðja þessa staðhæfingu, en ég ætla samt að segja það fullum fetum að ég trúi því ekki að 55% skilnaða á Íslandi séu vegna ofbeldis eða framhjáhalds. Ég held miklu frekar að fólk sé búið að finna mjög þægilega hjáleið fram hjá skilnaði að borði og sæng. Annað þeirra játar bara á sig að hafa haldið fram hjá. Einföld leið en ofboðslega óþægileg. Þarna er fólk sem er búið að vera gift í ákveðið langan tíma, það er búið að deila heimili, svo uppgötvar það einhverra hluta vegna að það vill ekki vera gift lengur. Þá hefur það um tvennt að velja, sé það algerlega sammála um að skilja; það getur annaðhvort setið af sér sex mánuði, skilið að borði og sæng, sem getur orðið til þess að samskipti súrna og skilnaðurinn verður ekki jafn mikið í sátt og samlyndi og hann hefði getað verið ef þau hefðu bara sloppið beint út. Eða að annað þeirra bítur á jaxlinn og lýgur upp á sig einhverju sem það gerði kannski ekki. Í þessum sporum er t.d. fólk þar sem annar aðilinn kemur út úr skápnum og áttar sig á því að manneskjan sem viðkomandi taldi sig ástfanginn af rímar engan veginn við það sem viðkomandi vill í annarri manneskju lengur. Af hverju er það ekki gild ástæða til beins lögskilnaðar? Nú eða að fólk er búið að vera saman mjög lengi og er bara algjörlega hætt að vera ástfangið. Vegna þess að það er ekki hægt að binda ástina í einhvers konar stjórnsýsluprósedúra, fólk veit þetta bara, og fólk veit þetta löngu áður en það leitar til sýslumanns til að sækja um skilnað. Málið er nefnilega að þegar fólk kemur til sýslumanns og sækir um skilnað er það búið að vera skilið að borði og sæng. Það er búið að reyna að halda áfram saman. Það er búið að fullvissa sig um að það vilji ekki vera í þessu hjónabandi lengur. Þess vegna, frú forseti, enda 55% skilnaða í beinum lögskilnaði, vegna þess að fólk er bara svo handvisst um að það vilji skilja við maka sinn að það er til í að taka á sig eina litla lygi.
En þannig þarf þetta auðvitað ekki að vera, því að alveg eins og við treystum fullorðnu fólki til að ganga í hjónaband, bara frekar hratt og örugglega — það þarf að skila inn pappírum til sýslumanns og fara yfir pappírana, tekur kannski viku, og eftir það getur það gengið í hjónaband — þá ættum við bara að treysta þessu sama fullorðna fólki til að slíta hjónabandinu með jafn einföldum hætti og það gekk í það.
Þetta er nú það sem ég vildi segja um 9. gr. frumvarpsins en ítreka það sem ég sagði í upphafi ræðu minnar, þakkir til flutningsmanns og þeirra sem stóðu með henni að samningu þessa stórgóða frumvarps, sem ég hlakka til að sjá komast langt.