sala Símans hf. á Mílu ehf.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu um sölu á þjóðhagslega mikilvægum innviðum til erlendra aðila. Ég vil byrja á að taka það fram að ég er á þeirri skoðun að mikil mistök hafi verið gerð í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á sínum tíma við sölu Símans þegar grunninnviðir voru ekki skildir frá heldur seldir einkaaðilum. Eins og fram kemur í umsögn ríkislögreglustjóra við frumvarp það sem nú er til umfjöllunar í hv. umhverfis- og samgöngunefnd er hér um að ræða ríkt öryggis- og neyðarnet fjarskipta á landinu sem stjórnvöldum ber að tryggja. Í frumvarpi ríkisstjórnar, sem var lagt fram sem nokkurs konar neyðarhemill og átti að afgreiða með hraði fyrir jól, er ekki að finna heimildarákvæði fyrir Fjarskiptastofu til að meta áhrif viðskiptanna á fjarskiptamarkað og fjarskiptainnviði. Því um hvað snýst það mál og um hvað snýst allt málið? Jú, um virka innviði, fjarskiptainnviði, öryggi og samkeppni í þágu neytenda. Og hvað gerist ef innviðirnir eru látnir drabbast niður? Er einhver leið að gera þá kröfu á þá erlendu fjárfestingarsjóði sem eru að kaupa Mílu að þeir viðhaldi tryggu fjarskiptaneti? Getum við staðið frammi fyrir því að verð til neytenda rjúki mögulega upp úr öllu valdi þegar svo stór þátttakandi er kominn inn á markaðinn með yfirburðastöðu?
Herra forseti. Við getum því miður ekki spólað til baka en við getum passað upp á það með lagaumgjörð að öryggi og hagsmunir almennings á Íslandi séu tryggðir. Þessi málamyndasamningur, sem hæstv. forsætisráðherra minntist á áðan, mun ekki halda neitt ef kaupin ganga ekki eftir en Samkeppniseftirlitið er að skoða þau. Það verður að tryggja virka lagaumgjörð sem tryggir öryggi og hagsmuni almennings í landinu. Um það snýst þetta mál fyrst og fremst.