152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[15:49]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér mikilvæg mál sem eru fjarskiptainnviðirnir okkar. Þetta mál er í grunninn tvíþætt. Þetta snýst um þá öflugu innviðauppbyggingu sem fjarskipti eru og eru gríðarlega mikilvæg fyrir nýsköpun og tækniþróun í landinu og hins vegar um öryggi, almannaöryggi, þjóðaröryggi og almannahagsmuni. Ég held að þetta tvennt geti farið saman en þarna eru margar áskoranir. Til þess að létta á spennunni þarna á milli og reyna kannski að ná báðum þessum þáttum sem ég nefndi áðan, nýsköpun og þróun og svo örygginu, þá held ég að við séum í dauðafæri hér á landi að koma þeim þáttum báðum mikið áfram með því að klára verkefni sem er óbeint komið langt af stað og það er að eiga okkar eigin öryggisfjarskipti, að stjórnvöld eigi sitt öryggisfjarskiptanet. Það eigum við í grunninn í dag í orkufjarskiptum, í öryggisfjarskiptum, innviðum Neyðarlínunnar og innviðum Ríkisútvarpsins og fleiri slíkum opinberum stofnunum. Ef við myndum sameina þetta í ein öflug öryggisfjarskipti þá kostar ekki svo mikið að klára þennan hring. Þá erum við búin að létta gríðarlega spennu þarna á milli og um leið stórauka öryggið sem mun þá hjálpa okkur í nýsköpun og þróun og önnur fyrirtæki vilja koma hingað og byggja upp tæknilausnir sem eru háðar fjarskiptum.