sala Símans hf. á Mílu ehf.
Herra forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu, kannski sérstaklega fyrir síðustu spurninguna sem kom fram hjá henni eins og rúsínan í pylsuendanum, sem var: Hvernig ætlum við að skila fjarskiptainnviðum landsins til komandi kynslóða? Ég held að Mílumálið kristalli nefnilega að svarið hjá ríkisstjórninni er að þau hafi ekki hugmynd um það. Þau hafa ekki hugmynd um hvernig á að byggja upp fjarskipti og tryggja upplýsingaöryggi til framtíðar. Þvert á móti skín endalaust í gegn sinnuleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart fjarskiptum og upplýsingaöryggi. Það birtist í Mílumálinu og birtist líka í því að fjarskiptum sé skúbbað yfir í eitt af bland í poka-ráðuneytunum í stjórnarráðsbreytingunum núna í byrjun kjörtímabils og þau slitin úr samhengi við aðra nauðsynlega innviði samfélagsins í innviðaráðuneytinu. Ég er ekki viss um að ríkisstjórnin átti sig á því að það er ekki hægt að gera of mikið úr því hversu mikilvæg almennu fjarskiptanetin eru. Allt fer í gegnum þau, ekki bara neyðarkerfin sem hér hafa verið nefnd heldur eru þau undirstaða allra mikilvægra innviða samfélagsins í dag.
Það er ekki eins og Mílumálið hafi birst eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ágúst á síðasta ári hefur verið nefndur en það voru fréttir af þessu máli í september 2020. Þetta var tvö ár á leiðinni. Allan þann tíma var til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd frumvarp um heildarfjarskiptalög þar sem voru mörg mikilvæg verkfæri fyrir Fjarskiptastofu til að skipta sér af viðskiptum af nákvæmlega þessu tagi. Það mál dagaði uppi í nefndinni, ekki vegna stjórnarandstöðu og einhverrar ósanngirni okkar heldur vegna þess að stjórnarliðar slátruðu því í nefnd við þinglok. Þetta var annað þingið í röð sem ríkisstjórnin hafði ekki dug til að klára þetta mikilvæga mál. (Forseti hringir.) Ef það hefði verið klárað þá stæðum við ekki hér að tala um Mílumálið sem eitthvert vandamál heldur hefðum við haft verkfæri til að taka á því.