152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[15:54]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda og forsætisráðherra fyrir að taka þessa umræðu. Félagið Míla er samfélagslega mikilvægt og heldur utan um þá grunninnviði sem eru þjóðhagslega mikilvægir. Fjarskipti verða sífellt nauðsynlegri liður nútímasamfélags. Það er ekki bara að ná í næsta mann eða geta unnið heiman frá sér heldur er þjóðaröryggi undir. Þeir innviðir sem til þarf eru mikilvægir í því sambandi og sá grunnur sem nútímasamfélagið og atvinnulíf okkar stendur á. Tilgangur Mílu er að byggja upp, viðhalda og reka innviði fjarskiptaþjónustu um allt land. Félagið snertir því okkur öll. Kerfi Mílu eru grunnur að fjölþættri fjarskiptaþjónustu.

Það er eðlilegt að sala á Mílu sé ígrunduð í grunninn og það er hlutverk Alþingis að greina og bregðast við sölu félagsins. Sala á Mílu til erlendra fjárfesta er nokkuð sem við þurfum að staldra við, greina og ræða sem samfélag. Það er nauðsynlegt að hér sé traust og aðgengileg fjarskiptaþjónusta og það er á ábyrgð stjórnvalda að hafa öflugt eftirlit. Við höfum innlendar eftirlitsstofnanir sem hafa eftirlit með fyrirtækinu en það þarf að efla það eftirlit og skiptir eignarhald engu máli í því sambandi.

Við erum með lög í landinu sem tryggja staðsetningu kjarnabúnaðar á sviði fjarskipta hérlendis. Það er gert með vísan til þjóðaröryggishagsmuna og í þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland er kveðið á um að tryggja skuli vernd grunnvirkja og núverandi starfsemi Mílu lýtur nú þegar ákvæðum laga er varða öryggishagsmuni.

Eignarhald erlendra aðila á innviðum hér á landi er ekki endilega ávísun á verri þjónustu eða verra aðgengi, við höfum dæmi því til sönnunar. Hins vegar er sala á grunninnviðum, eins og kerfi Mílu, ekki áhættulaus. Sala Mílu þarf að sæta eftirfylgni stjórnvalda og byggja á skýru verklagi og ferlum um upplýsingamiðlun og reglubundnu endurmati, hver svo sem kaupandinn er, hvort sem hann er innlendur eða erlendur.