152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[15:56]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Um er að ræða, að ég held, stærstu erlendu fjárfestingu hér á landi síðasta áratug, verðmiðinn nálgast 80 milljarða kr. Það er auðvitað mikið í húfi, það blasir við, og það eru tækifæri í þessari sölu. En hagsmunirnir eru á hinn bóginn slíkir að þetta geta aldrei talist viðskipti sem ekki eiga erindi við almenning.

Ég vil taka fram í upphafi að ég er ekki mótfallin þessari sölu. Ég er talsmaður alþjóðlegra viðskipta og styð sterkt og gagnsætt samfélag. En það þarf að rýna viðskipti með þjóðfélagslega mikilvæga innviði og það þarf að gera það í kjölinn, því að þjóðaröryggi verður að vera tryggt öllum stundum og þar undir er netöryggi mjög vaxandi þáttur. Við þurfum vissu um að samskipti okkar innan lands og við umheiminn standi ekki og falli með einu fyrirtæki, búnaði, starfsfólki og starfsemi þess. Við þurfum vissu um að gætt sé að samkeppni og að tengingar okkar séu í höndum fleiri en eins aðila. Það kemur líka til skoðunar að það er síaukin þörf fyrir gagnaflutning og auknar kröfur um áreiðanleika hans og áhrif á samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavísu. Þannig að þarna eru margþættir hagsmunir undir og grundvallarhagsmunir sem tengjast innbyrðis. Breytingar á eignarhaldi fjarskiptainnviða og jafnvel sala þeirra úr landi þurfa alls ekki að vera áhyggjuefni. Innviðir á borð við þá sem eru í eigu Mílu þurfa að vera í höndum aðila sem hafa þekkingu á viðhaldi þeirra og svigrúm til að sinna því.

Samkvæmt tilkynningu hefur umrætt félag hug á að hraða fjárfestingarverkefnum Mílu og leggja sérstaka áherslu á lagningu ljósleiðara í sveitarfélögum á landsbyggðinni. Í því felast vissulega jákvæðar fréttir. En áhyggjuefnið hér í mínum huga er hvernig undirbúningi stjórnvalda hefur verið háttað og hvernig lagaumgjörðin tryggir hina samfélagslegu hagsmuni sem undir eru. Ég tel að hæstv. ráðherra verði að gefa þinginu skýrari svör en ríkisstjórnin hefur gert, um hvernig tryggja eigi þessa grundvallarhagsmuni.