sala Símans hf. á Mílu ehf.
Virðulegi forseti. Sá ágæti rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, Guðmundur Andri Thorsson, skrifaði fyrir nokkru grein þar sem hann lýsti Íslendingum og þeirra dálæti á þrætueplum, þeirra þvermóðsku, þeir töluðu út og inn um allt sem betur mætti fara en svo þegar kæmi að sjálfum kjarna málsins þá dytti allt í dúnalogn. Mér kemur þetta í hug núna þegar mikilvægt mál er hér til umræðu, sem strangt til tekið er ekkert endilega á vettvangi Alþingis eða ríkisstjórnar að fjalla um. Þetta er einkafyrirtæki sem verið er að selja. En þess er beðið að með sölunni verði einhvers konar vottun eða stimplun frá Alþingi. Það er betra fyrir kaupandann.
Kjarni málsins í þessu öllu er að sumt á kannski alls ekkert að einkavæða. Suma innviði er kannski best að ríkið sjái um. Það var ekki endilega til mikillar gæfu á sínum tíma að selja Símann með þeim hætti sem gert var. Það myndi ekki flokkast undir mikla sigurgöngu þeirra sem að því stóðu. En úr því sem komið er þá finnst mér kjarni málsins vera, og vonandi dettur ekki allt í dúnalogn við það eitt að nefna kjarna þessa máls, það meginatriði að hér sé raunverulegt síma- og netsamband um allt land, traust og öruggt hvað sem á dynur, hvað sem á bjátar. Svo er alls ekki í dag. Það er götótt kerfi sem við stöndum uppi með núna, öllum þessum árum síðar. Þess vegna hef ég lagt frumvarp þess efnis að í þau göt verði bætt. Hér er kannski sóknarfæri til að sjá til þess að með vottun Alþingis á þessum samningi skuli fylgja skuldbinding um að stagað verði í þessi göt.