152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[16:00]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Sú staða sem þjóðin og stjórnvöld hafa verið sett í varðandi sölu á grunnneti Símans og Mílu til erlendra aðila á sér sögu vanhugsaðra ákvarðana fyrir um 17 árum síðan. Það sem síðan hefur gerst er afleiðing af því. Það var salan á Símanum ásamt grunnnetinu. Þingmenn VG voru andvígir þeirri sölu og fóru fram á þjóðaratkvæðagreiðslu um málið sem var hunsuð. Svörin hjá þáverandi stjórnarherrum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks voru að svo margt væri hægt að gera fyrir þessa peninga; byggja nýjan Landspítala, leggja Sundabraut. Hvað varð? Hvar er Sundabrautin? Dagur B. var ekki einu sinni orðinn borgarstjóri þá. Enn tölum við um Sundabraut. Þá gekk maður undir mann í Framsóknarflokknum fyrir forystuna að útskýra fyrir almennum flokksmönnum á landsbyggðinni að ekki væri hægt að skilja að Símann og grunnnetið við sölu hans, enda hafði þeim verið lofað að Síminn yrði ekki seldur, hvað þá grunnnetið. Blekið var varla þornað eftir söluna en einmitt var búið að skilja frá grunnnetið, Mílu, sem nú er verið að selja úr landi, sem verður allt eins braskað með af erlendum vogunarsjóðum á næstu árum. Meðganga málsins var þá auðveldari hjá þáverandi samstarfsflokki Framsóknar í ríkisstjórn og þáverandi ráðherrum og þingmönnum þess flokks.

Ég rifja þetta upp núna því sagan er til að læra af henni. Nú erum við stödd þar sem þarf að gera það besta úr stöðu sem m.a. lífeyrissjóðirnir hafa komið okkur í og tekið þátt í að koma okkur í, málpípur markaðsaflanna og fyrirtæki sem skreyta sig gjarnan um þessar mundir með stefnum og tali um samfélagslega ábyrgð en skeyta jafnvel minna um þjóðarhagsmuni, almannahagsmuni og þjóðaröryggi sem órjúfanlegan hluta af þeirri orðræðu. Það fellur því í hlut stjórnvalda og Alþingis að tryggja þá hagsmuni. Við verðum að gæta að almannahagsmunum okkar sem þjóðaröryggi. Hvað með fjölskylduna á Fellsströnd sem varð síma- og fjarskiptalaus í viku núna? (Forseti hringir.) Hvað skorar örugg þjónusta við slík heimili hátt hjá erlendum vogunarsjóðum? Við verðum að tryggja og standa með dreifðum byggðum sem reiða sig á örugg fjarskipti, byggðaöryggi, þýðingu góðra og öruggra fjarskipta fyrir byggð um land allt.