152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[16:03]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það var árið 2005 sem ríkið seldi Símann. Málið var umdeilt og Samfylkingin lagðist gegn sölunni en Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn keyrðu hana í gegn og Míla var síðan stofnuð. Míla er ekkert venjulegt fyrirtæki sem engu máli skiptir hvernig er rekið. Starfsemin varðar íslenskan almenning og öryggi þjóðarinnar, varðar efnahags-, öryggis-, varnar- og almannahagsmuni. Því verður að gera ríkar kröfur til fjárfestingarfélagsins sem mun ef að líkum lætur verða eigandi Mílu. Míla má ekki fara í hendur fjárfestingarsjóðsins án skilyrða um samfélagsöryggi sem halda, því ef illa fer verður almenningur fyrir skaða. Gerð voru mistök við sölu Símans á sínum tíma. Þau verða ekki tekin til baka en við getum sett lög og regluverk sem tryggir viðhald, öryggi og heimild yfirvalda til að taka fyrirtækið yfir ef neyðarástand skapast eða einkaaðilinn er ekki hæfur til að sinna svo mikilvægri starfsemi. Er tryggt að koma megi í veg fyrir að eigendur geti að geðþótta eða vegna vanhæfni lamað íslenskt samfélag, farið með fyrirtækið út fyrir lögsögu Íslands eða selt úr landi nauðsynleg tæki til starfseminnar?

Alþingi hefur ekki fengið að rýna skilyrðin sem hæstv. forsætisráðherra nefndi að sett hafi verið um söluna til að ganga úr skugga um að með þeim sé þjóðaröryggis gætt. Sala Mílu vekur upp spurningar um hvernig verja megi sem best nauðsynlega innviði samfélagsins til að gæta að hag almennings og samfélagsöryggi. Salan vekur einnig spurningar um íslenska lífeyrissjóði sem óvirka eigendur í fyrirtækjum. (Forseti hringir.) Ættu eigendur lífeyrissjóðanna ekki að gera kröfu til þess að þeir beiti afli sínu sem hluthafar og fjármagnseigendur (Forseti hringir.) til að hafa áhrif á viðskiptahætti fyrirtækja? Lífeyrissjóðir áttu meiri hluta í Mílu.