152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[16:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég byrja á að þakka málshefjanda fyrir að taka þetta mál til umræðu. Þetta er stórt og mikið mál. Í störfum mínum á þingi hef ég lagt mikla áherslu á þjóðaröryggismál og innviði á undanförnum árum, hvort sem litið er til flutningskerfis raforku, flugvallanna, flugvallakerfisins, netöryggismála eða fjarskipta. Auðvitað eru þetta grundvallarþættir í fjórðu iðnbyltingunni og á þeim tímum sem við erum að fara inn í, í þeirri stafrænu framtíð sem við horfum til. Og umræðan hér í dag, þetta Mílumál, tengist því.

Mílumálið snýr ekki beint að eignarhaldinu. Það er ekki eignarhaldið sem er aðalatriðið hér, heldur lagaumhverfið og hvernig eftirlitið er tekið í gegnum lögin, að löggjöfin sé sterk og að í gegnum löggjöfina tryggjum við þjóðaröryggi og almannaheill á þessu sviði sem öðrum. Þetta mál snýr náttúrlega bæði að þjóðaröryggi og almannaheill og ég hef fulla trú á því að fjárfestirinn gæti 78 milljarða fjárfestingar með augunum, og öllu því sem því fylgir; að halda því við, byggja á og annað. Þetta eru fastir innviðir innan lands, í jörðinni meira og minna, ljósleiðaratengingar. Auðvitað er full samkeppni í landinu þó að þetta eignarhald komi fram.

Við fylgjum náttúrlega Norðurlöndunum. Við fylgjum vinaþjóðunum í NATO í þessum málum og sú umgjörð hlýtur að vera það sem við byggjum mál okkar á. Við erum að vinna mál núna sem tengist þessu, sem er í sjálfu sér tímamótafrumvarp — og þau eru að koma fleiri á næstu misserum — þ.e. frumvarp um áfallaþol fjarskiptaþjónustu og fjarskiptaneta, sem tengist þessu máli. (Forseti hringir.)

Ég er hins vegar mjög ánægður með, herra forseti, að við séum að ræða almennt (Forseti hringir.) um þjóðaröryggismál hér og við eigum að gera það miklu oftar. (Forseti hringir.) Það er af mörgu að taka í þessu máli.