152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[16:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Þessa dagana fer Samkeppniseftirlitið yfir það hvort það geri athugasemd við söluna á Mílu, eðlilega, þegar um er að ræða fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu. Vandinn er að yfirferð Samkeppniseftirlitsins nær ekki yfir alla þá þætti sem skoða þarf þegar seldir eru jafn sérstakir grunninnviðir og um ræðir í tilfelli Mílu. Þess vegna er til samevrópskt regluverk sem er kallað Kóðinn, sem fjallar um fjarskiptakerfi í Evrópu og átti að innleiða hér á landi með nýjum heildarlögum um fjarskipti. Það er búið að leggja það frumvarp tvisvar fram. Á síðustu tveimur þingum hefur ríkisstjórnin lagt það frumvarp fram og ekki haft kraft til að klára það. Það er forgangurinn sem er settur í fjarskiptaöryggi í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ef það frumvarp hefði verið orðið að lögum hefði ekki bara verið skoðuð hefðbundin samkeppnisstaða, eins og Samkeppniseftirlitið er að gera, heldur líka bara gæði og öryggi grunnnets fjarskipta, sem hlýtur að skipta öllu máli og verður ekki skoðað hjá Samkeppniseftirlitinu. En nei, það frumvarp kláraðist ekki síðasta vor eða vorið þar áður. Enn bíðum við eftir öðru frumvarpi frá ríkisstjórninni sem hefði verið mjög gott að hafa í höndunum þegar Mílumálið kom upphaflega upp varðandi rýni fjárfestinga erlendra aðila í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum sem hæstv. forsætisráðherra nefndi hér áðan. Það á að koma fram 17. mars.

Herra forseti. Sinnuleysi kallaði ég þetta í fyrri ræðu minni hér. Sofandaháttur er annað sem mætti kalla það. Ég vona að ríkisstjórnin sé ekki lengur sofandi, en mikið óskaplega þykir mér hún lengi að vakna.