sala Símans hf. á Mílu ehf.
Virðulegi forseti. Sala Mílu hefur verið allt annað en óumdeild. Heyrst hafa sterkar raddir um að salan ógni þjóðaröryggi, það sé ekki öruggt að eignarhald grunnnets og fjarskipta sé í höndum erlendra aðila. Nokkrar staðreyndir hafa þegar komið fram. Míla rekur grunninnviði sem eru okkur þjóðhagslega mikilvægir. Engin skilyrði um eignarhald íslenskra aðila eru til staðar í fjarskiptalögum.
Salan hefur verið til umfjöllunar hjá þjóðaröryggisráði. Þeirri skoðun er ekki lokið en af aðgengilegum gögnum get ég ekki séð að salan ógni þjóðaröryggi Íslands. Í nýjum lögum um Fjarskiptastofu eru ríkar heimildir til eftirlits sem og skilyrði um að allur búnaður þurfi að vera framleiddur af ríkjum sem Ísland á í öryggissamstarfi við, eða ríkjum innan EES.
Í þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland er kveðið á um að tryggja skuli vernd grunnvirkja og samkvæmt lögum er hægt að lögbinda staðsetningu kjarnabúnaðar á sviði fjarskipta hérlendis og vísað þar til þjóðaröryggishagsmuna. Að mati samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins mun samkomulag um framangreint, auk fyrirhugaðra nýmæla í fjarskiptalögum, stuðla að því að starfsemi Mílu samrýmist þjóðaröryggishagsmunum.
Eftirfylgni stjórnvalda með framkvæmd samkomulagsins verður að byggjast á skýru verklagi og ferlum um upplýsingamiðlun, nauðsynlegt samstarf og reglubundið endurmat með tilliti til mikilvægis þjóðaröryggishagsmuna. Með nýframlögðu frumvarpi um breytingu á lögum um fjarskipti og lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri tel ég að við getum tryggt betur öryggi fjarskiptanets Íslendinga með góðum hætti. Mikilvægt er að enginn vafi leiki á því að öryggi grunninnviða fjarskipta á Íslandi sé með öllu tryggt til hlítar því að það skiptir miklu máli að þingið taki umræðuna (Forseti hringir.) og ég þakka fyrir að fá tækifæri til að koma að fyrrgreindum sjónarmiðum.