152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

sala Símans hf. á Mílu ehf.

[16:13]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Í þessu stóra máli eru ýmsar grundvallarspurningar undir, eins og t.d. mörkin á milli ríkis- og einkarekstrar, þjóðaröryggismál og einnig efnahagur okkar allra í gegnum gjaldmiðil. Svo það sé sagt skýrt: Viðreisn sér ekki ástæðu til að gera athugasemd við þessi viðskipti á grundvelli þess að þessir innviðir þurfi að vera í eigu ríkisins eða skilyrðislaust í eigu innlendra fyrirtækja. Aðalatriðið er að lagaumgjörð og regluverkið í kringum þennan markað sé í lagi, að hann sé skilvirkur, sanngjarn og ekki síst að eftirlitið sé traust. Við getum skoðað þetta með hliðsjón af öðru innviðakerfi sem er í eigu opinberra aðila. Flutningskerfi raforku hefur verið mikið í fréttum, einfaldlega vegna þess að eigendum þess hefur gengið illa að byggja upp kerfið og halda því við. Afleiðingin er skortur og skerðing á raforku með tilheyrandi tapi á verðmætum og skaða fyrir atvinnuuppbyggingu, að ekki sé talað um veikleikana sem birtust okkur í óveðrinu mikla sem gekk yfir fyrir fáeinum misserum. Þetta dæmi segir okkur að eignarhaldið eitt og sér, opinbert eignarhald eða innlent, er ekki ávísun á að hagsmunir almennings séu tryggðir. Andvaraleysi stjórnvalda þegar kemur að þjóðaröryggishlutanum er mun meira áhyggjuefni. Allar greiningar og úttektir sérfræðinga á þessu sviði segja okkur að þau sjónarmið þurfi mun meira vægi í umræðunni, enda heimsmynd okkar gerbreytt í tæknivæddum heimi. Þarna þurfa stjórnvöld að halda vöku sinni og mega ekki hrökkva upp við vondan draum þegar í óefni er komið líkt og gerðist þegar þetta mál fór af stað.

Þetta eru stór og mikil viðskipti og í tilkynningu frá Símanum hefur sérstaklega verið varað við áhrifum á gengi krónunnar. Svo vitnað sé í tilkynningu Símans vegna málsins:

„Þá er um að ræða viðskipti af stærðargráðu sem mögulega valda tímabundnum flæðisfrávikum eða óvenjulegum skammtímahreyfingum á gengi krónunnar …“

Við þurfum því ekki bara að spyrja spurninga um hugarþel og áform útlendinga heldur einnig um árvekni ríkisstjórnarinnar og, merkilegt nokk, Seðlabankans líka.