sala Símans hf. á Mílu ehf.
Forseti. Mig langar að byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra og öðrum sem tóku til máls, fyrir þeirra innlegg. Það er enn þá gríðarlega mörgum spurningum ósvarað. Þó fékk ég því svarað að ríkisstjórnin heyrði um þetta 13. ágúst. Samt heldur Síminn hluthafafund 31. ágúst þar sem ekki er talað um þessi mál. Við hér og almenningur heyrðum fyrst af þessum áformum — ja, ég held að það hafi verið hreinlega í vikunni eftir kosningar. Svo tóku við níu vikur þar sem ekkert okkar gat gert neitt, ekki spurt neinna spurninga eða haft nokkur einustu áhrif á þetta mál.
Það er vantraust hjá Íslendingum á einkavæðingu sem þessari og það er ekki að ástæðulausu. Almenningur, neytendur græða aldrei á því þegar eitthvað er einkavætt með þessum hætti. Við höfum alltaf þurft að borga fyrir það. Það er öllum ljóst að rekstur Mílu stendur ekki undir þessum 78 milljörðum þannig að einhvers staðar verður þetta tekið frá, það er alveg á hreinu.
Mig langar til að beina þeirri spurningu núna til hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna var beðið með að opinbera þetta fram yfir kosningar? Að beiðni hvers var það gert og hver tók þá ákvörðun? Og var samstaða um það innan ríkisstjórnarinnar? Mér finnst það skipta gríðarlega miklu máli. Það er líka alveg ljóst að ákveðnir aðilar höfðu vitneskju um þetta á meðan aðrir höfðu það ekki. Þarf þá ekki að rannsaka hlutabréfaviðskipti, sérstaklega innherja og tengdra aðila, með bréf í Símanum í aðdraganda samnings um söluna á Mílu? Eða hefur það kannski verið gert? Ég hef ekki mikið meira um þetta að segja í bili en þakka kærlega fyrir þátttöku ykkar allra.