sala Símans hf. á Mílu ehf.
Herra forseti. Ég þakka umræðuna sömuleiðis. Það hefur margt komið fram og mér gefst ekki tími til að svara því öllu. En ég ætla að nefna líklega fjögur atriði. Það hefur verið fjallað um það í tilkynningunni frá fyrirtækinu, m.a. frá Símanum til Kauphallarinnar í apríl 2021, að ráðgjafar hefðu verið ráðnir til að kanna valkosti varðandi framtíðareignarhald. Um þetta var fjallað í fjölmiðlum þannig að ég fæ ekki séð að neinu hafi verið haldið leyndu um þetta. Þann 13. ágúst fæ ég hins vegar upplýsingar um að þetta sé komið á það stig að það eigi að fara að ráðast í þetta og þá upplýsti ég þjóðaröryggisráð og ríkisstjórn um leið. Síðan lá ekki fyrir fyrr en síðar að það væru þessir tilteknu kaupendur sem til stæði að selja. Það er ekkert að því að spyrja um þessa tímalínu en mér finnst mikilvægt að þetta liggi hér fyrir í þingsal.
Í öðru lagi vil ég segja að ég tel engan veginn hægt að tala um andvaraleysi. Hv. þingmenn vita að ég hef verið að vinna umfangsmikla vinnu, m.a. um löggjöf um jarðir og fasteignir. Slíkt frumvarp var samþykkt hér á síðasta þingi, því miður ekki með stuðningi allra flokka, en það snýst nákvæmlega um þetta, að gera eignarhald á landi á Íslandi gagnsætt til að tryggja okkar fullveldishagsmuni og tryggja að stjórnvöld hafi stöðu til að grípa inn í ef eitthvað þykir ógna almannahagsmunum eða öryggishagsmunum. Mér þótti mjög leiðinlegt að stjórnarandstaðan treysti sér ekki til að styðja það mál en fagna þeim áhuga sem ég skynja hér á breyttum háttum í þessum efnum.
Síðan vil ég taka upp einn þráð sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason nefndi. Ríkisstjórnin hefur verið að kaupa tiltekna þætti. Ég nefni Auðkenni, ég nefni meiri hluta í Neyðarlínunni, ég nefni Farice-strenginn, sem snýst um fjarskipti við útlönd. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við höldum áfram á þessari braut og tryggjum ákveðið grundvallaröryggi. (Forseti hringir.) Á vettvangi þjóðaröryggisráðs hefur verið rætt, m.a. að frumkvæði hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur, um sjálfstæða innlenda greiðslulausn (Forseti hringir.) og á þessari braut. þurfum við að halda áfram til að tryggja samfélagslegt og þjóðaröryggi. (Forseti hringir.) En að öðru leyti þakka ég umræðuna, herra forseti.