tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir framlagningu þessa frumvarps og þá ræðu sem hér var hægt að hlýða á. Ég er þeirrar skoðunar, þó að það sé ekki útbreidd skoðun í þessu húsi, að manni beri að fagna öllum góðum hugmyndum sama hvaðan þær koma. Ég er ekki viss um að margir hafi hlustað á það sem hér var sagt eða séu að hlusta á það sem hér er sagt núna, þetta er tómur salur á flesta mælikvarða. En ég er áhugasamur um að reyna að ýta á eftir þessari góðu hugmynd því að hér hafa auðvitað feykiduglegir þingmenn verið að störfum áratugum saman og það er innbyggt í kerfið að menn eigi að leggja fram sem flest frumvörp og í gangi innbyrðissamkeppni milli þingmanna tiltekinna flokka og síðan innbyrðissamkeppni milli flokka um hver nær flestum frumvörpum í gegn, en það er sjaldnast spurt hvað þau kosta. Þess vegna fagnaði ég því, á kynningu á nefndasviði í morgun, að nú er gert ráð fyrir því að setja skuli einhvers konar verðmiða á nýjar og góðar hugmyndir áður en þeim er hleypt í gegn og þær gerðar að lögum.
Það sem þingmaðurinn er að ræða um er auðvitað bara hagkvæmni og betrun í ríkisrekstri. Við þurfum að fara í gegnum allt sem búið er að vinda upp á sig og hengja um hálsinn á íslenskum skattgreiðendum og íslenskum þegnum og athuga hvað megi betur fara og hvernig við getum síðan fjölgað þeim tekjuaflandi stoðum ríkissjóðs sem eiga að standa straum af öllu. Ég styð því málið.