152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

143. mál
[16:38]
Horfa

Flm. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Ég færi hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni kærar þakkir fyrir góðar móttökur og þessa sjaldséðu nálgun hér í þinginu, að ætla að meta málið einfaldlega út frá innihaldi þess fremur en yfirskrift eða því hver það er sem leggur það fram. Ég held að það væri til mikilla bóta ef fleiri þingmenn nálguðust hlutina á sama hátt og hv. þingmaður hefur reyndar komið hér inn í þingið sem ferskur andblær. Þó að hv. þingmaður líti út fyrir að vera yngri en ég þá veit ég, af því ég hef einfaldlega séð tölurnar, að hann er það ekki en hann kemur engu að síður með æskukraft og nýja sýn og reynsluna að auki af því að taka þátt í íslensku samfélagi, íslensku atvinnulífi og stjórnmálum. Það er mikill fengur að hv. þingmanni hér og ég vona að það verði fleiri þingmenn sem líti hlutina sömu augum og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon.