152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

143. mál
[16:39]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hlý og falleg orð og ég geri mér vonir um að við getum náð einhvers konar samstöðu, bæði minnihlutaflokkar og meirihlutaflokkar, um að efla með okkur eindrægni, jákvæðni og sérstaklega að veita góðum hugmyndum brautargengi. Ég veit að það hefur átt sér stað, kannski ekki oft innan sama kjörtímabils, að minnihlutahugmyndir hafa verið teknar upp á vettvangi meiri hluta, það eru dæmi þess. Ég er vongóður og hugmynd eins og sú sem hér hefur verið kynnt í dag verðskuldar að vera tekin alvarlega og vera tekin til afgreiðslu. Ég myndi ekki skorast undan því að taka þátt í starfi sem myndi miða að því að minnka álögur á íslenskan almenning. Mér er fullkunnugt um að þó að báðir foreldrar í barnafjölskyldum séu útivinnandi og á þokkalegum launum reynist það jafnan dálítið erfitt venjulegu fólki að ná endum saman um mánaðamót. Á Íslandi er dýrasta matarkarfa í heimi, hér eru skattar óhemjuháir. Við flokkum okkur auðvitað með velferðarþjóðum í fremstu röð og allt það en af ýmsum ástæðum, sem okkur eru kunnar, þá er það nú einu sinni svo að dýrtíðin á Íslandi er gríðarleg og stærstur hluti af tekjum okkar endar hjá ríkinu þegar upp er staðið, með sköttum og neyslusköttum og slíku. Við skulum gera hér bót á með sameinuðu átaki, öll.