152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

143. mál
[16:42]
Horfa

Flm. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er mikilvæg hvatning og það er alveg rétt, sem hv. þingmaður segir, að til eru dæmi um það að tillögur frá almennum þingmönnum hafi náð í gegn, kannski eitt eða tvö dæmi á hverju þingi og þá hefur það yfirleitt verið sett í samhengi við einhvers konar samninga um þinglok, verið hluti af hrossakaupum, ef svo má segja. Alla jafna eru mál frá almennum þingmönnum úr stjórnarandstöðu einfaldlega látin hverfa eða þau felld. Jafnvel þó að málin séu meiri hlutanum, ríkisstjórninni, að skapi vilja menn frekar fella málið og koma svo síðar sjálfir með svipað mál og stundum nákvæmlega sams konar mál.

Um þetta eru mörg dæmi og það er einmitt af þessari ástæðu sem þessi tillaga er lögð fram með þeim hætti sem raun ber vitni, að ríkisstjórninni verði einfaldlega falið ákveðið verkefni þannig að hún geti gert málið að sínu ef svo má segja. Verði sú raunin syrgi ég það ekki þótt ráðherrar státi sig af árangrinum, alls ekki. Því að eins og hv. þingmaður kemur hér inn á þá á þetta ekki bara að vera spurning um það hver kemur með tillöguna og hver framkvæmir, heldur hver árangurinn verður.