framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni fyrir að hafa barist fyrir þessu máli hér í langan tíma, í 17 ár. 17 eru langur tími. Að búa við skert lífsgæði í 17 ár er langur tími og að búa við óöryggi í 17 ár er langur tími. Það er á ábyrgð þessara sveitarfélaga og á ábyrgð okkar að tryggja öryggi íbúa. Með öryggi íbúa erum við líka að tala um að tryggja að íbúar Suðurnesja geti gengið til starfa og átt lífsviðurværi sitt á svæðinu. Því hefur verið ógnað um langan tíma. Alþjóðaflugvöllur okkar Íslendinga er suður með sjó. Hann þarf orku. Frá árinu 2013 til ársins 2020, á sjö ára tímabili, fjölgaði íbúum Suðurnesja um 31% eða um tæplega 6.700 íbúa. Á sama tíma, bara til samanburðar, fjölgaði landsmönnum eða fólki á landsvísu um 13%. Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um ríflega 31%. Og hvað þýðir það? Það þýðir meiri orku, fleiri störf. Við þurfum að bæta innviðina og þetta er liður í þá veru.
Það eru mikilvægar grunnstoðir atvinnulífs suður með sjó. Ég nefndi áðan alþjóðaflugvöllinn, Leifsstöð, sem er gátt ferðamanna inn í landið. Þetta er gátt gjaldeyristekna. Þarna er sömuleiðis öflugt varnarsvæði Íslands. Þarna eru margar atvinnugreinar, grunnatvinnugreinar þjóðarinnar, öflugur sjávaratvinnuvegur, öflug matvælaframleiðsla. Þarna eru líftæknifyrirtæki. Þarna eru uppi hugmyndir um að efla það enn frekar og það eru uppi mjög metnaðarfull áform um stórkostlega uppbyggingu í landeldi á fiski. Allt þetta krefst orku og það getur ekki orðið nein uppbygging frekari á Suðurnesjum ef hún kemur ekki til.
Hér er talað um að leggja línu í jörð og vitaskuld er það framtíðin. En hún er dýr. Hún er mörgum sinnum dýrari. Vísindamenn hafa líka sagt okkur það í ljósi atburða sem orðið hafa á Suðurnesjum á síðasta ári að það er töluverð hætta á því að eldgos valdi jarðstrengjum skaða.
Eins og ég sagði í upphafi er málið orðið langt og strangt. Það var gefið út framkvæmdaleyfi árið 2013. Þetta þolir enga bið. Ég harma það virkilega að þarna hafi ekki náðst samstaða á milli sveitarfélaga til uppbyggingar svæðisins öllum til heilla.
Ég ætla endurtaka þakkir mínar til Ásmundar Friðrikssonar fyrir að hafa verið ötull baráttumaður þessa máls. Ég er það líka.