framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2.
Virðulegur forseti. Íbúar í Vogum eru líka Suðurnesjamenn. Þeir hafa alla vega verið það frá því að ég fæddist og jafnvel lengur. Þeir þurfa á orku að halda. Ég er líka Suðurnesjamaður og ég ætla að líta svo á, þó að einhverjir vilji eigna sér það, að þetta sé eitthvert sérstakt baráttumál þeirra af því að þeir eru meðflutningsmenn eða flutningsmenn á þessu máli, að ég sé baráttumaður fyrir Suðurnesjalínu 2. Ég hef verið baráttumaður fyrir Suðurnesjalínu 2 í mörg, mörg ár, en málið er bara þannig að sá farvegur sem það hefur verið sett í ítrekað hefur gert það að verkum að það hefur tekið þetta langan tíma, 17 ár, eins og hv. þm. Ásmundur Friðriksson nefndi áðan. 17 ár vegna þess að það er búið að þvæla málinu fram og til baka og alls ekki verið tekið rétt á því. Það er nefnilega þannig að Landsnet hefur verið rekið til baka með þetta mál fyrir dómstólum, þannig að vinnubrögð Landsnets hafa ekki alltaf verið samkvæmt bókinni þó að maður hafi ákveðna samúð með þeim sjónarmiðum að reyna að gera hlutina á hagfelldan hátt.
Ég vil því ítreka það sem ég sagði áðan, að í mínum huga er réttur sveitarfélaga mjög mikilvægur og að við séum ekki að fremja hér einhver verk sem ganga á rétt þessara sveitarfélaga. Mér finnst algerlega ótækt og mun ekki standa fyrir því að taka lögvarinn rétt af sveitarfélagi, ekki undir neinum kringumstæðum. Ég skil almannahagsmuni og ég skil að þetta er mikilvægt fyrir okkur. Ég þekki alveg sjálfur hvað það er að búa atvinnulaus á Suðurnesjum. Ég veit alveg hvaða þýðingu þetta hefur fyrir okkur þegar ég veit að 25% af fyrirtækjum sem ætla að hefja starfsemi vilja koma til Suðurnesja en geta það ekki út af orkuskorti. Ég geri mér alveg grein fyrir öllum þessum hlutum en ég ætla ekki sem sveitarstjórnarmaður að keyra yfir lögvarinn rétt sveitarfélags. Mér dettur það ekki í hug.