152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2.

11. mál
[17:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það kom hérna rétt í lok ræðunnar setning sem mér fannst dálítið óþægileg, að virða að vettugi þá gagnrýni. Mig langar að biðja hv. þingmann um að útskýra það aðeins. Á hv. þingmaður við að nefndin eigi að virða að vettugi þá gagnrýni sem hefur komið fram um að það þurfi að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga? Af því að þessi orð voru sögð í samhengi þá finnst mér nauðsynlegt að það sé skýrt.