úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara.
Virðulegi forseti. Við búum í landi þar sem náttúruhamfarir eru tíður gestur og sökum hnattrænnar hlýnunar munu þær bara verða tíðari gestur. Það er því mikilvægt að tryggja að hægt sé að veita viðeigandi bætur til þeirra sem verða fyrir tjóni af völdum náttúruhamfara. Mikil þróun hefur verið í því hvernig önnur lönd hafa tæklað þessi mál. Má í því sambandi benda á sérhæfðar endurtryggingar á sviði náttúruhamfara sem Alþjóðabankinn var brautryðjandi á. Við höfum líka séð að þær tryggingar sem eru í boði í dag ná ekki yfir allar þær tegundir náttúruhamfara sem hér geta átt sér stað. Er þá í fersku minni það óveður sem gekk yfir landið undir lok árs 2019 en þar var bændum t.d. einungis gert kleift að ná í bætur vegna tjóns á húsnæði en ekki vegna taps á búfénaði. Og ekki man ég hvernig fór með Bjargráðasjóð og girðingarnar. Það er nefnilega þannig að núverandi náttúruhamfaratryggingar taka ekki til óveðurs. Það er kannski athyglisvert að skoða það, sér í lagi með áhrifum loftslagsvárinnar þar sem við getum búist við að sjá meira af slíku óveðri, hvort ekki þurfi að bæta þær tryggingar sem í boði eru fyrir þá sem missa hluti á þeim tímum. Einnig þarf að skoða vel hluti eins og tryggingarupphæðir.
Mig langar í því sambandi að tala aðeins um brunabótamat. Ástæðan fyrir því að ég tala um brunabótamat er að í lögum um náttúruhamfaratryggingu Íslands er mikið talað um endurbyggingarverð en það er nákvæmlega það sama og kemur fyrir í lögum um brunabótamat. Brunabótamat er efnislegt verðmæti húseignar sem eyðilagst getur í eldi og miðast við byggingarkostnað að teknu tilliti til aldurs, slits, viðhalds og ástands eignar að viðbættum kostnaði við hreinsun brunarústa. Textinn í lögunum um náttúruhamfaratryggingu Íslands er mjög svipaður nema að þar er talað um að hreinsa burt ofanflóð eða annað sem hefur komið þarna á. Brunabótamat er endurreiknað árlega en síðan uppfært mánaðarlega í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu. Þar er komin ansi mikil skekkja, sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu þar sem húsnæðisverð hefur hækkað mjög ört. Ég tók t.d. mína eigin eign og sá að ef það kviknaði í henni í dag og hún eyðilegðist þá myndi ég einungis fá 66% af verðmæti hennar greitt. Þá er spurningin: Af hverju er þetta svona lágt og hver hagnast á þessu lága brunabótamati? Ekki eru það húseigendur sem missa húsin í bruna — hvar ég ætti að finna þessi auka 34% til að geta keypt mér sambærilega eign, ég veit ekki hvar það er — heldur eru það tryggingafélögin sem þurfa ekki að borga út jafnmikið þegar tjón verður. Mér er spurn hvort þetta sé jafnvel svipað hjá náttúruhamfaratryggingu; ef miklar náttúruhamfarir kæmu hér á höfuðborgarsvæðinu, hvort fólk gæti fengið eignir sínar greiddar út á raunhæfu raunhæfi verði. Það er nauðsynlegt að gera gagngerar leiðréttingar á þessu áður en næstu hamfarir verða og fólk situr uppi með stórt tap, þriðjungs tap í mínu tilfelli á minni húseign.
Ég er meðflutningsmaður frumvarpsins og tel það hið allra besta mál og vona að það leiði til bættrar verndar fyrir húseigendur þessa lands.