152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.

98. mál
[18:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Eins ágæt og þessi tillaga er þá fæ ég svona tilfinningu sem ég er sjálfur mjög á móti, það er að gera þetta eða hitt, það er á þeim nótunum. Það er hægt að gera hvort tveggja. Það væri hægt að stroka út orðið „orlofs“ og segja bara húsnæði örorkulífeyrisþega. Við erum í smávandamálum með húsnæði yfirleitt. Ég vil ekki segja að það eigi að gera það en ekki þetta heldur hvort tveggja. Það var kannski það sem ég hef helst til málanna að leggja hvað málið varðar. Ég ætla ekki að hafa andsvarið miklu flóknara en það.