orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég er hjartanlega sammála því að það þarf að halda áfram að vinna að húsnæðismálum öryrkja almennt. Sem betur fer þá er ýmislegt verið að gera, til að mynda á vegum Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalagsins, og sveitarfélögin hafa verið að byggja og útbúa húsnæði en ég skal svo sannarlega taka undir það að mun betur má ef duga skal. Biðlistar eftir húsnæði eru allt of langir. Ég tel þó að hið almenna húsnæði ætti að vera í sérmáli enda um svo miklu viðameira mál þar að ræða. Ég er ansi hrædd um að ef málin yrðu spyrt saman í eina þingsályktunartillögu flutta hér af þingmanni á Alþingi þá myndi lítið gerast í orlofshúsamálunum. Ég tel vænlegra, til að ná árangri á báðum sviðum, að samþykkja þessa tillögu sem, líkt og ég fór yfir í framsögu minni, er gríðarlega hógvær en yrði vonandi byrjunin að því að upp myndi rísa orlofshúsabyggð. Hitt málið þarf engu að síður að taka föstum tökum og tryggja að allt fatlað fólk og öryrkjar hafi tryggt og gott húsnæði.