orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.
Forseti. Ég ætla að renna aðeins yfir það atriði sem ég fjallaði um í andsvari við hv. þingmann áðan. Ég var með fyrirspurn á 147. löggjafarþingi um fjölda félagslegra íbúða. Endurtekin fyrirspurn frá fyrri árum, hef spurt þó nokkuð oft um það. Það væri kannski ágætt að endurnýja hana núna fimm árum seinna eða svo. Í svarinu kemur fram að það eru 136.423 íbúðir á öllu landinu, þar af 5.065 félagslegar íbúðir eða 3,7%. Það er mjög upplýsandi að skoða hvar þær eru, hvar hæsta hlutfallið er og líka hvar lægsta hlutfallið er, t.d. í Garðabæ eru 35 íbúðir eða 0,7%. Það er ekki lægsta hlutfallið, það er 0 í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Helgafellssveit, sem ég veit ekki hvort er skiljanlegt eða ekki, en það er alla vega ekki mikið af þeim íbúðum. Í Borgarfjarðarhreppi, þar sem er 91 íbúð, eru 9 félagslegar íbúðir eða 9,9%. Það er líka merkilegt að á höfuðborgarsvæðinu, ef við förum þangað, er Kópavogur með hlutfallið 3,4%. Ég veit ekki hvort það er nægilega hátt hlutfall. Reykjavíkurborg er í 4,7% og eftir því sem ég best veit er Reykjavík með hæsta hlutfallið á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var árið 2017. Skagaströnd er með einna hæst hlutfall, 33 íbúðir af 214, eða 15,4% íbúða. Nei, fyrirgefið, hér er Fljótsdalshreppur með 22 félagslegar íbúðir af 42, 52,4%, hvorki meira né minna. En maður veltir fyrir sér hvort sveitarfélög sinni sínum skyldum með því að hafa fáar sem engar félagslegar íbúðir í boði. Við höfum alveg heyrt um ákveðna hreppaflutninga á fólki sem hefur ekki aðgang að þjónustu vegna örorku eða þátta sem gera það að verkum að það þarf á félagslegri íbúð að halda. Mögulega er það vegna aðstæðna sem ekki eru í boði í sveitarfélaginu.
Ef það er pólitísk ákvörðun að byggja einfaldlega ekki félagslegar íbúðir, eins og manni finnst vera ákveðin lykt af eins og í Garðabæ, þar eru heilar 35 félagslegar íbúðir árið 2017 — það er kannski búið að breytast eitthvað, það er þá bara fínt að uppfæra þessa fyrirspurn og fá nýjar tölur og sjá hvað hefur breyst síðan þá — þá er það eitt og sér mjög áhugavert. Hvað er gert í staðinn? Er ætlast til þess að það sé bara fólk með háar tekjur og sem geti borgað hátt útsvar sem búi þar, að öllum félagslegum úrræðum sé sleppt? Það er orðrómurinn sem maður hefur heyrt, að öllu slíku sé velt yfir á Reykjavíkurborg og hún sinni slíkri þjónustu. Það er ekkert rosalega málefnalegt, myndi ég segja, og veldur mjög mikilli skekkju í útsvari og skattheimtu þar sem það er mjög augljós mismunun á milli sveitarfélaga, sum þurfa ekki endilega að innheimta hámarksútsvar af því að þau byggja einfaldlega ekki félagslegar íbúðir þar sem býr fólk með lægri tekjur sem hefur aðgang að slíkum íbúðum. Þetta snýst líka um val á búsetu, ef maður fer aðeins út í frelsispælingar. Segjum sem svo að þetta sé fæðingarbær einhvers, staðurinn þar sem hann ólst upp, en vegna ýmissa óhappa eða annars þá er erfitt að ná miklum tekjum og þar af leiðandi fær hann kannski ekki val um að kaupa íbúð eða að búa í því sveitarfélagi sem hann hefur átt heima í af því að það er ekki aðgengi að félagslegu húsnæði.
Þetta tengist kannski minna því sem við er að glíma í þessari þingsályktunartillögu, en hún fjallar um húsnæði þessa hóps. Í stærra samhengi þá erum við líka að glíma við húsnæðisskort alls staðar á landinu. Það vantar um 4.000 íbúðir samkvæmt greiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem áætlun er um með hlutdeildarlánum, sem voru samþykkt á síðasta kjörtímabili, að ná upp á tíu árum. Mér finnst það dálítið langur tími. Það átti að ná 300, 400, 500 íbúðum á ári með því úrræði. Svar frá því í gær sýndi að það náðust 300 íbúðir. Það þarf að bæta við einum þriðja til tveimur þriðju af þeim fjölda til að ná markmiðinu og að vinna upp þann fjölda sem vantar á tíu árum. Þá erum við farin að nálgast 20 ár ef áætlun um mannfjöldaþróun stenst, sem hefur yfirleitt ekki gerst hingað til, hún hefur yfirleitt farið aðeins umfram það. Það er líklegt að eftir tíu ár, þó að við myndum ná að byggja upp 4.000 íbúðir, verði enn þá skortur. Það er gott að vera kannski aðeins hlaupandi á því ef það skyldi verða þannig að fólksfjölgun yrði meiri, að við gætum bætt betur í. Það er gott að hafa svigrúm. Þá gæti einmitt aukin áhersla á byggingu félagslegs húsnæðis hjálpað, sem væri t.d. í því formi að það væri ekki bara leiga heldur líka kaupleiga. Þá væri hægt að nota það kerfi til að koma nýjum íbúðum af stað sem myndu síðan velta út á almenna markaðinn í kjölfarið. Það væri ákveðin vinda eða hringrás nýbygginga sem væri kannski í því kerfi. Ég held að það væri mjög heppilegt fyrirkomulag ef við pælum aðeins í því.