orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.
Herra forseti. Þetta var áhugaverð yfirferð hjá hv. þingmanni um félagslegt húsnæði, sem er allra góðra gjalda vert. Líkt og ég sagði í andsvari fyrr í þessari umræðu þá styð ég það að framboð á félagslegu húsnæði um allt land verði aukið. Mér finnst þó mikilvægt að halda því til haga að húsnæðismál öryrkja og fatlaðs fólks snúast ekki bara um félagslegt húsnæði. Félagslegt húsnæði tekur til mun víðtækari hóps en fatlaðra og hluti af vanda fatlaðs fólks þegar kemur að húsnæði er almennt aðgengi að almennum íbúðum sem eru byggðar á hinum almenna markaði. Það að fjölga félagslegum íbúðum eitt og sér er ekki endilega svar við öllum vanda fatlaðs fólks eða öryrkja, en vissulega tengist þetta saman. Aðgengið og hin algilda hönnun og krafan um það frá okkur öllum, bara til þess að við getum boðið öllum í heimsókn til okkar á okkar heimili, skiptir gríðarlegu máli.
Svo vil ég líka nefna það að ég tel að sumarfrí eða orlofsmál eigi ekki að vera einhver aukaafurð fyrr en búið er að laga alla aðra hluti í samfélaginu, því að það eitt og sér að geta breytt um umhverfi skiptir máli. Mig langar þess vegna að spyrja hv. þingmann, vegna þess að hann vék að mjög litlu leyti að tillögunni sjálfri, hvort að hann styðji það að fara í þessa úttekt og svo vonandi uppbyggingu á orlofshúsnæði fyrir örorkulífeyrisþega.