orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.
Forseti. Ég hélt ég hefði einmitt vikið að því í andsvarinu að mér finnst bæði betra, mér finnst þurfa að gera hvort tveggja. Þess vegna vildi ég líka að setja þetta í stærra samhengi, sem er vandamál á húsnæðismarkaðnum. Ég hélt að ég hefði verið alveg skýr með að félagslegt húsnæði er að sjálfsögðu ekki bara fyrir öryrkja eða eldra fólk, ef það kom ekki skýrt fram í máli mínu þá er það almennt bara fólk sem á ekki annarra kosta völ, af hvaða ástæðum sem það er. En þarna er einhver valmöguleiki til staðar til að komast inn. Mér finnst mikilvægt að fólk átti sig á því að lífeyriskerfið okkar er að hálfu leyti byggt upp á séreignarstefnunni, sem þýðir að ef við ætlum að koma öllum í almannatryggingakerfið, lífeyriskerfið að lokum, þegar fólk hættir vinnu o.s.frv. eða hvernig sem það kemur þangað inn, þá þarf það í rauninni að vera með öruggt húsnæði, helst skuldlaust, öruggt húsnæði. Annars duga almannatryggingar eða greiðslur úr lífeyrissjóðum ekki fyrir lífsviðurværi. Það er ekki flóknara en það. Þess vegna finnst mér hugmyndin um t.d. kaupleigufyrirkomulag á félagslegu húsnæði vera álitleg leið til þess að koma fólki með lægri tekjur inn í lífeyriskerfið í rauninni, þ.e. þann helming lífeyriskerfisins sem er ekki í gegnum skattlagninguna, lífeyrissjóðina eða almannatryggingar.