152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.

98. mál
[19:05]
Horfa

Flm. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka af allan vafa um það að honum hugnist tillagan þó svo að hann hafi notað ræðutíma sinn í að fjalla um húsnæðismál almennt og önnur mál. Ég tel hins vegar, líkt og ég fór í gegnum í bæði framsöguræðu og í andsvörum, gríðarlega mikilvægt, óháð öllu öðru sem við þurfum að sjálfsögðu að vinna að, að við hugum líka að því að öryrkjar og fatlað fólk geti notið þess að fara í annað umhverfi og frí líkt og aðrir landsmenn. Ég tel mjög mikilvægt að hefja úttekt sem getur síðan orðið til að byggja upp slíkt kerfi vegna þess að lífsgæðin aukast svo mikið við það. Við höfum svolítið talað um innleiðingu á velsældarhagkerfi og partur af velsæld og því að líða vel er að geta gert sér dagamun og geta gert sér dagamun í aðgengilegu umhverfi og á viðráðanlegu verði. Þess vegna tel ég mikilvægt að við náum árangri í því sérstaklega og í því ljósi er þessi sérstaka tillaga lögð fram. Að sjálfsögðu höldum við áfram að bæta almennt kjör lífeyrisþega vegna þess að það skiptir máli fyrir gott samfélag. En þetta litla sértæka mál má samt ekki stranda á stærri málum sem þó þarf að takast á við.