152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.

98. mál
[19:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Þetta var athyglisverð ræða hér í andsvari um velsæld og það að geta fengið aðgang að orlofshúsnæði á viðráðanlegu verði þegar kjör lífeyrisþega hafa ekki einu sinni fylgt launaþróun. Það finnst mér pínu kaldhæðnislegt þegar allt kemur til alls. Ég veit ekki hvort er hænan og hvort er eggið þar. Viðráðanlegt verð væri væntanlega bara 0 kr., fyrstur kemur, fyrstur fær, í umsóknum eða eitthvað svoleiðis, eitthvert punktakerfi eða því um líkt, því að ekki sé ég að fólk sem er á lífeyri sé aflögufært til að fara mikið í þetta alla jafna. Ef maður á að fylgja þessu eftir þá er þetta kannski aðgengilegt einhverjum ákveðnum sem ekki eru bara bundnir við framfærslu almannatrygginga. Ég veit það ekki. Jú, mér finnst mjög sniðugt ef þetta væri möguleiki en það er heildarsamhengið sem við þurfum að vita af líka. Vandinn við þetta er að þessi hópur fólks er ekki með framfærslu á við alla aðra þannig að það hefur ekki sömu möguleika og aðrir, kjör þess hafa ekki fylgt launaþróun eins og hjá öllum öðrum. Einhvers staðar verðum við að byrja á að leysa vandann og ég er á þeirri skoðun að það megi byrja á mörgum stöðum, það sé ekki bara annaðhvort eða, þetta eða hitt, að það verði að velja eitt eða annað. Það má velja marga hluti, við getum gert margt í einu. Þessi tillaga er einn af þeim hlutum, tvímælalaust.