viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Ég vildi vekja athygli þingheims á því að þegar við göngum hér til dagskrár og dagskrárliðurinn heitir Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra þá er ekki verra að það séu ráðherrar í salnum. Á góðum degi á Austurvelli eru ágætislíkur á því að maður rekist á ráðherra á förnum vegi því að þeir eru jú tólf í ríkisstjórninni en samkvæmt dagskránni eru það bara tveir sem ætla að sitja hér fyrir svörum í dag.
Mér finnst þetta bagalegt vegna þess að þetta er auðvitað partur af upplýsingagjöf til þingsins og til almennings og þegar við erum með tólf ráðherra í ríkisstjórn þá hlýtur að vera hægt að gera kröfur um betri heimtur en að það mæti bara tveir til að svara. Ég bendi sérstaklega á það að nú þegar við sjáum fyrirsagnir á vefmiðlum um að heimsfaraldurinn sé kallaður af helsta sérfræðingi þjóðarinnar „faraldur barnanna“ þá sést ekkert til barnamálaráðherra sem gæti kannski veitt okkur upplýsingar um gang mála. Ég gagnrýni það að ríkisstjórnin og ráðherrar sýni þinginu ekki meiri virðingu en svo að það mæti bara tveir af tólf til að gefa upplýsingar til þingsins um þau mál sem efst eru á baugi í samfélaginu hverju sinni.