152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[10:35]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að möguleikar þingmanna til að spyrja ráðherra eru auðvitað með ýmsum hætti. Það eru óundirbúnar fyrirspurnir, sem gegna vissulega mikilvægu hlutverki. Sama er með skriflegar fyrirspurnir til munnlegs svars, sem þingmenn eiga kost á að leggja fram, og eins skriflegar fyrirspurnir til skriflegs svars. En að sjálfsögðu verður athugasemdum hv. þingmanna komið á framfæri.