152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[10:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það sem fram hefur komið hérna. Það er svolítið skrýtið að það skuli bara tveir ráðherrar vera mættir, og það tveir með ný heiti; innviðaráðherra og vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ef ég man rétt nafnið á þeim. Og ég spyr: Eru hinir kannski farnir í frí? Það væri ágætt að upplýsa hvers vegna í ósköpunum hingað eru bara tveir komnir. Það eru 12 ráðherrar og ég myndi telja lágmark að 40–50% af þeim myndu skila sér hingað inn í umræðuna. Það hlýtur að vera skýring á þessu og ég spyr bara: Er skýringin sú að hinir séu komnir í frí?