viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Það er stutt síðan þingflokkur Viðreisnar sendi forseta þingsins sérstakt bréf til að óska eftir því að hægt væri að eiga samtal við heilbrigðisráðherra, við fjármálaráðherra í hvert skipti sem ríkisstjórnin — og í henni situr líka Sjálfstæðisflokkurinn, svo því sé haldið til haga — framlengir sóttvarnaaðgerðir, að eiga samtal um það hvaða efnahagsaðgerðir eiga að fylgja o.s.frv. Ég býst fastlega við því að við þeirri ósk verði orðið. En sú er ekki reyndin í dag, þannig að þetta er okkar sterkasta verkfæri sem stendur að eiga í þessu samtali. Það er makalaust í ljósi þess að í ríkisstjórninni í dag sitja 12 ráðherrar. Það sitja 12 ráðherrar í þessari ríkisstjórn og gegna ákveðnu hlutverki á þingi og þeir eru tveir mættir. Ætlun okkar hér í dag var að ræða við mennta- og barnamálaráðherra um sóttkví barna, um skólagöngu þeirra og þá staðreynd að ótrúlega mikill fjöldi barna hér á landi er í sóttkví. En við getum ekki átt það samtal vegna þess að hann er ekki mættur.