hlutdeildarlán og húsnæðisverð.
Virðulegi forseti. Hér kemur kannski hinn raunverulegi vilji Samfylkingarinnar fram, þ.e. ef það virkar ekki einn, tveir og þrír þá tökum við bara ákvörðun og gerum þetta. Það hefur oft alls ekki virkað og þess vegna hafa menn verið að kljást við þennan félagslega íbúðamarkað. Eigum við að rifja upp allar forsendurnar þegar byggt var upp húsnæði hringinn í kringum landið á grundvelli tillagna frá þeim sem seinna varð formaður Samfylkingarinnar? Eigum við að gera það? (Gripið fram í.) Eða eigum við, hv. þingmaður, að horfast í augu við það að á síðustu árum fór einn þriðji af því húsnæði sem byggt var til þessara fyrstu kaupenda, á síðustu mánuðum, vegna opinberra aðgerða; almennar íbúðir, fyrsta fasteign, hlutdeildarlán o.fl. Og eigum við að halda áfram að reyna að stilla skrúfurnar til þess, sem ég held að við þingmaðurinn séum sammála um að sé nauðsynlegt, (Forseti hringir.) að búa til meira jafnvægi á húsnæðismarkaðnum, til að tryggja lægra verð fyrir flesta og öruggt skjól fyrir íbúa landsins?