152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

stuðningur við nýsköpun.

[11:10]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Nýsköpun er fjársjóður og það er vissulega mikilvægt að nýsköpun, rannsóknir og sprotastarfsemi njóti stuðnings frá hinu opinbera. En það er hins vegar ekki sama hvernig það er gert. Við í Pírötum höfum verið sterkir talsmenn þess að efla stuðning við nýsköpun og auka fjármagn í nýsköpunar- og rannsóknasjóði. En nú er svo komið að upphæð á endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar frá hinu opinbera er að nálgast tvöfalda þá upphæð sem úthlutað er úr Tækniþróunarsjóði og rannsóknasjóðunum samanlagt, þ.e. tæpir 11 milljarðar í fyrra. Skatturinn hefur gagnrýnt fyrirkomulagið við þessar endurgreiðslur og bent á eftirfarandi, með leyfi forseta:

„[B]rögð hafa verið að því að við skattskil hafi almennur rekstrarkostnaður og kostnaður sem telja verður að tilheyri frekar eðlilegum endurbótum á fyrirliggjandi afurð sem viðkomandi fyrirtæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna staðfestra nýsköpunarverkefna.“

Skatturinn hefur einnig bent á að það eru engin viðurlög við misnotkun á þessu kerfi, ekkert álag megi leggja á þá sem beita þessum brögðum og áréttaði hann einmitt í umsögn til Alþingis að slík misnotkun leiði vissulega til verulegra útgjalda af hálfu hins opinbera ásamt því að raska samkeppni á markaði.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Stendur til að bregðast við þessum ábendingum Skattsins um skort á viðurlögum við misnotkun á þessu kerfi?