stuðningur við nýsköpun.
Virðulegi forseti. Ég taldi mig hafa hlustað ansi vel á svar hæstv. ráðherra sem ég þakka fyrir. En ég heyrði ekki svar við spurningunni sem var hvort það stæði til að setja viðurlög við misnotkun á þessu kerfi vegna þess að misnotkun á því kostar óhemju mikið fé og skekkir samkeppnisstöðu á markaði. Þannig að ég óska eftir því að fá svar frá hæstv. ráðherra um hvort hugur hennar standi til þess að tryggja að viðurlög verði við misnotkun á þessu ívilnandi kerfi sem ríkið og þessi ríkisstjórn er búin að gefa út að hún ætli að viðhalda og gera varanlegt.
Að lokum vil ég segja að nú er það svo að mörg stór fyrirtæki, m.a. stærstu útgerðarfélögin í landinu, eru að fá hundruð milljóna, jafnvel milljarða þegar saman er talið, yfir árið í gegnum þetta kerfi. Og þegar kemur að forgangsröðun velti ég fyrir mér hvort það sé raunverulega svo að stærstu fyrirtækin í landinu sem eru að taka út fleiri milljarða í arð á hverju ári þurfi raunverulega á því að halda að fá hundruð milljóna úr ríkissjóði fyrir nýsköpunarverkefni sem ekki einu sinni er búið að sýna fram á að séu endilega nýsköpunarverkefni.