stuðningur við nýsköpun.
Virðulegi forseti. Ég mun skýra reglur ef þess þarf, en ég þarf fyrst að fá rými til að skoða hvort viðurlög séu endilega besta lausnin áður en ég slæ því föstu hér. Við þurfum að gæta þess að þetta umhverfi skapi þann hvata og búi til það umhverfi sem nýtist okkur sem best. Það er ekki eingöngu gert með styrkjum eða fjármagni frá hinu opinbera heldur með því að veita skattafslætti eða annað sem virkar hvetjandi á einkageirann, sama hvort um er að ræða stór eða lítil fyrirtæki, til þess að styðja enn frekar við nýsköpun. Hv. þingmaður veit mætavel hvað það getur skilað okkur miklu meiru til baka til samfélagsins, hvort sem það eru stórar grænar lausnir sem þessi stóru fyrirtæki fara í með því að fjárfesta í nýsköpun o.s.frv. eða annað. Ég held að við eigum ekki að setja ákveðna forgangsröðun um hvernig fyrirtæki eigi að geta sótt í þessa sjóði eða endurgreiðslur eða fá skattafslætti (Forseti hringir.) heldur frekar að hvetja öll fyrirtæki til að stíga skref í átt til nýsköpunar, sem getur skapað miklu meiri verðmæti í íslensku samfélagi.