152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.

232. mál
[11:32]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem sætt hafa takmörkunum á opnunartíma. Í frumvarpinu er mælt fyrir um nýtt stuðningsúrræði vegna kórónuveirufaraldursins sem ætlað er að koma til móts við vanda rekstraraðila veitingastaða sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli sökum takmarkana á opnunartíma.

Hér er lagt til að rekstraraðilar veitingastaða sem hafa orðið fyrir minnst 20% tekjufalli í almanaksmánuði frá desember 2021 til mars 2022 vegna takmarkana á opnunartíma geti fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði á tímabilinu. Lagt er til að umsækjendur þurfi að uppfylla skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksumsvif, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og um að vera ekki í gjaldþrotameðferð. Styrkurinn getur numið 90% af rekstrarkostnaði þann almanaksmánuð sem umsókn varðar en ekki hærri fjárhæð en nemur tekjufalli rekstraraðila viðkomandi mánuð. Styrkurinn getur jafnframt ekki orðið hærri en 500.000 kr. fyrir hvert stöðugildi á mánuði á tímabilinu og allt að 2,5 millj. kr. á mánuði ef tekjufall var 20–60%, en allt að 600.000 kr. fyrir hvert stöðugildi og allt að 3 millj. kr. ef tekjufall var meira en 60%. Samanlagðir styrkir til einstakra rekstraraðila vegna tímabilsins alls geta því að hámarki orðið 10–12 milljónir. Ekki er gert ráð fyrir því að rekstraraðili geti fengið styrk samkvæmt frumvarpinu á meðan honum var skylt að loka veitingastað, enda fyrirséð að hann geti sótt um lokunarstyrk vegna slíks tímabils.

Líkt og gildir um lokunar-, tekjufalls- og viðspyrnustyrki er lagt til að bæði umsóknar- og ákvörðunarferlið vegna styrkjanna verði rafrænt og að framkvæmdin verði falin Skattinum. Jafnframt er lagt til að ákvarðanir hans sæti kæru til yfirskattanefndar og þá er lagt til að heiti lögaðila sem fá styrk verði birt opinberlega. Úrræðið flokkast sem tilkynningarskyld ríkisaðstoð samkvæmt EES-samningnum en fellur að mati ráðuneytisins undir þann tímabundna ramma um ríkisaðstoð sem er þegar í gildi vegna faraldursins. Eftirlitsstofnun EFTA hefur verið tilkynnt um málið á þeim forsendum. Á þessum grunni er hámark heildarstuðnings til tengdra aðila að meðtöldum styrkjum samkvæmt frumvarpinu, þ.e. ferðagjöf, lokunarstyrkjum fyrir lokunartímabil eftir 17. desember 2020, tekjufallsstyrkjum og viðspyrnustyrkjum, 330 millj. kr. frá upphafi faraldursins.

Í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir 1 milljarðs króna framlagi í styrki til þeirra rekstraraðila í veitingaþjónustu sem hafa orðið fyrir mestum áhrifum af sóttvarnaráðstöfunum. Heildaráhrif frumvarpsins á ríkissjóð geta orðið allt að 3 milljörðum kr. Það eru þó alger hámarksáhrif og líklegra er talið að heildaráhrifin verði nær 1,5 milljörðum kr.

Við meðferð 210. máls á yfirstandandi löggjafarþingi, sem sneri m.a. að frestun gjalddaga skatta fyrir fyrirtæki í veitingarekstri, var sú breyting gerð á frumvarpinu að láta það einnig ná til gististaða með vínveitingaleyfi. Ég teldi heppilegt að víkka þetta frumvarp út með svipuðum hætti þannig að skilgreining á veitingastöðum verði látin ná til veitingarekstrar á vegum gististaða með vínveitingaleyfi. Að mati ráðuneytisins gætu áhrif slíkrar breytingar á frumvarpinu á ríkissjóð orðið á tímabilinu 1,5–1,8 milljarðar kr. til viðbótar við heildaráhrifin, þá á bilinu 3–4 milljarðar. Ráðuneytið er fúst til að veita aðstoð við slíka breytingu verði þess óskað.

Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi höldum við áfram að styðja við mikilvæga atvinnugrein sem orðið hefur fyrir tjóni vegna sóttvarnatakmarkana síðustu vikur. Undanfarið hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið átt í góðu samtali við fulltrúa fyrirtækja í veitingarekstri en alls hafa fyrirtæki í greininni fengið um 11 milljarða kr. í beina styrki frá hinu opinbera vegna faraldursins. Markmiðið með þeim úrræðum sem hér er mælt fyrir er eins og áður að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.

Virðulegur forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.